Auðkenndir viðskiptavinir
Dyrnar opnast aðeins eftir auðkenningu og hver heimsókn er skráð.
Ómönnuð verslun selur líka þegar enginn stendur við kassann. Viðskiptavinir opna dyrnar með símanum, versla eins og venjulega og greiða sjálfir. Þú færð fleiri sölutíma og viðskiptavinirnir fá verslun sem er opin þegar þeim hentar.
Í mörgum byggðarlögum er erfitt að halda úti verslun. Viðskiptavinirnir eru of fáir til að standa undir launum allan daginn, og þegar versluninni er lokað þurfa íbúarnir að aka langar leiðir eftir mjólk og brauði.
Ómönnuð verslun leysir þetta. Verslunin getur verið opin lengur án þess að launakostnaður hækki. Starfsfólkið getur unnið þegar flestir koma og sinnt þjónustu, pöntunum og áfyllingu, en á kvöldin og um helgar sér verslunin um sig sjálf.
Það þarf ekki að breyta öllu í einu. Margir byrja á því að hafa opið nokkrum tímum lengur á kvöldin eða á sunnudögum og bæta svo við þegar viðskiptavinirnir hafa vanist því.
Viðskiptavinurinn skannar QR-kóðann við dyrnar með símanum og auðkennir sig, til dæmis með rafrænum skilríkjum frá Auðkenni. Dyrnar opnast aðeins fyrir auðkennda viðskiptavini.
Inni er allt eins og venjulega: sömu hillur, sömu vörur og sama verð og á daginn.
Viðskiptavinurinn skannar vörurnar í sjálfsafgreiðslukassa, greiðir og fer. Engin biðröð og ekkert starfsfólk þarf.
Lestu meira um sjálfsafgreiðsluverslun og hvernig viðskiptavinurinn greiðir.

Algengasta spurningin er hvernig koma megi í veg fyrir rýrnun þegar enginn er á staðnum. Svarið er að verslunin er ekki nafnlaus:
Dyrnar opnast aðeins eftir auðkenningu og hver heimsókn er skráð.
Myndavélar sýna hvað gerist í versluninni, líka eftir á.
Vörur sem ekki má selja án starfsfólks eru læstar inni á ómönnuðum tímum.
Yfirleitt þarf ekki að endurbyggja verslunina. Það sem þarf er rafrænn lás með aðgangsstýringu, sjálfsafgreiðslukassi, myndavélar og stöðug nettenging.
Alveg eða að hluta ómönnuð, og hvenær.
Húsnæði, opnunartími, kassar og vöruúrval.
Hvað þarf, hvað það kostar og hvenær hægt er að opna.
Við gerum tillögu og hjálpum þér alla leið.
Verslanirnar á myndunum eru opnar þótt ekkert starfsfólk sé á staðnum. Sama tæknin hentar í sveitaverslun, matvöruverslun og verslun í einingahúsi.
Myndbandið sýnir kaup frá upphafi til enda: viðskiptavinurinn velur auðkenningarleið, opnar hurðina, skannar og greiðir með símanum eða í sjálfsafgreiðslukassanum og gengur svo út. Myndbandið er á ensku.
Viðskiptavinurinn opnar dyrnar með símanum, tekur vörurnar og greiðir sjálfur í sjálfsafgreiðslukassa. Verslunin getur verið opin þótt ekkert starfsfólk sé á staðnum.
Aðeins viðskiptavinir sem hafa auðkennt sig með símanum. Verslunareigandinn ákveður hverjir fá aðgang, með hvaða auðkenningu og hvenær.
Já. Þú ræður opnunartímanum. Sumir hafa opið allan sólarhringinn, aðrir frá morgni til kvölds.
Dagvörur eins og mjólkurvörur, brauð, drykkir og tilbúnir réttir henta vel. Vörur sem ekki má selja án starfsfólks eru læstar inni á ómönnuðum tímum.
HonestBox er sænskt fyrirtæki sem opnaði fyrstu ómönnuðu verslun Svíþjóðar árið 2015. Fyrirtækið afhendir kerfi fyrir ómannaðar verslanir, sveitaverslanir og sjálfsala.
Það fer eftir versluninni og þeim búnaði sem þegar er til staðar. Segðu okkur frá versluninni og þú færð tillögu með verði og tímaáætlun.
Segðu okkur frá versluninni, óskum þínum og tímaáætlun og við höfum samband með tillögu.